Ian Wright fyrrum framherji Arsenal opnaði sig um erfitt sumar í The Overlap á Sky Sports. Hann missti sinn besta vin og bróður í sumar.
Kevin Campbell fyrrum samherji Wright hjá Arsenal lést í sumar eftir veikindi og tveimur vikum síðar féll bróðir hans frá.
„Þetta hefur verið erfitt sumar, ég missti minn mann Kevin Campbell og tveimur vikum síðar lést bróðir minn,“ sagði Wright.
„Þetta er eitt af því sem gerist í lífinu en þetta hefur áhrif á mann.“
„Ég keyri um og hugsa um bróðir minn, hann var góður í krikket og fótbolta. Hann heimsótti mig ekki oft því hann var einfari.“
Rödd Wright var við það að brotna saman en hann hélt áfram. „Ég var alltaf að reyna að vera í sambandi við hann og svo einn daginn er hann bara farin.“
„Ég er að fara í útför hjá Kevin og svo hjá bróðir mínum, þetta er mjög erfitt.“
„Mér líður ágætlega með þetta núna en svo koma augnablik þar sem þetta nær manni. Að syrgja er ferli og það fer í raun aldrei.“