KR hefur staðfest að Pálmi Rafn Pálmason sé hættur sem þjálfari og að Óskar Hrafn Þorvaldsson taki við
Ástæðan er sögð vera aðstöðumál félagsins en gervigrasið er ónýtt. Pálmi verðue strax framkvæmdarstjóri félagsins.
KR tilkynnti þann 1. ágúst að Óskar Hrafn væri nýr aðstoðarþjálfari Pálma Rafns Pálmasonar en tæki svo við liðinu eftir tímabilið.
Nú eftir einn leik sem aðstoðarþjálfari hefur KR hins vegar ákveðið að Óskar Hrafn taki strax við liðinu.
Óskar var ráðinn ráðgjafi KR þann 11 júní en breytti um starf þann 3 júlí og varð yfirmaður knattspyrnumála.
Það var svo 1. ágúst sem hann var ráðinn aðstoðarþjálfari en þrettán dögum síðar hefur hann enn á ný breytt um starfstitil.
Pálmi Rafn Pálmason sem var þjálfari KR mun nú verða framkvæmdarstjóri félagsins. Það verður hans sjötta starf í KR á rúmu ári.
Pálmi var i fyrra íþróttafulltrúi KR, Pálmi tók svo við kvennaliði KR í fyrra en féll með liðið úr 1. deildinni.
Pálmi varð þá yfirþjálfari yngri flokka í KR en var svo ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla nokkru síðar.
Þegar Gregg Ryder var svo rekinn úr starfi í sumar var Pálmi ráðinn þjálfari og hættir þar núna og verður framkvæmdarstjóri.
Tilkynning KR:
Aðalstjórn KR hefur óskað eftir kröftum Pálma Rafns Pálmasonar fyrr en áætlað var og því hefur Óskar Hrafn Þorvaldsson tekið við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla. Aðstöðumál Knattspyrnufélags Reykjavíkur er á mjög alvarlegu stigi og því getur félagið ekki verið framkvæmdastjóralaust fram yfir lok keppnistímabilsins.
Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Pálma innilega fyrir óeigingjarnt starf fyrir deildina og óskum honum velfarnaðar í nýju starfi fyrir félagið.