Á síðasta ári setti Coca-Cola vanillu Coke-Zero á markaðinn og í haust kemur Zero með Oreo-bragði á markað. Það verður sykurlaust.
Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu sem fyrirtækin sendu frá sér í gær.
Eugenia Zalis, markaðsstjóri Oreo, sagði að vináttubönd Oreo og Coca-Cola séu til þess fallin að sameina aðdáendur vörumerkjanna. Það verði spennandi að sjá viðbrögð þeirra við nýju vörunni en hún verður sett á markað í 35 löndum.