Hnefaleikakonan og nýkrýndi ólympíumeistarinn Imane Khelif hefur kært Elon Musk og J.K. Rowling fyrir netníð. Tæknimógúllinn og rithöfundurinn gætu átt fimm ára fangelsisdóm yfir höfði sér tapi þau málinu.
Nafn hinnar alsírsku Khelif hefur verið mikið á milli tannanna á fólki og hafa margir ranglega haldið því fram að hún sé karlmaður að keppa í kvennaflokki. Er það byggt á vafasömu kynjaprófi hnefaleikasambandsins IBA, sem er undir hæl Rússa. Einnig hefur því ranglega verið haldið fram að Khelif sé transkona. Khelif vann gull á ólympíuleikunum í 66 kílógrammaflokki kvenna.
Á meðal þeirra sem létu falla ummæli um Khelif voru Rowling og Musk, en þau hafa bæði einnig komist í fjölmiðla á undanförnum árum vegna andúðar á transfólki.
Khelif lagði fram kæru á hendur Musk, Rowling og fleirum í Frakklandi vegna meints netníðs eins og segir í frétt breska blaðsins Daily Mail. Nabil Boudi, lögmaður Khelif, nefndi þau tvö sérstaklega en einnig er möguleiki að fleiri nöfnum verði bætt við kæruna. Meðal annars nafni Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Kæran var lögð fram hjá nethatursglæpadeild saksóknara í síðustu viku, skömmu áður en ólympíuleikunum lauk.
Möguleg refsing fyrir netníð af þessu tagi eru samkvæmt frönskum hegningarlögum 2 til 5 ára fangelsisdómur. Einnig sektir á bilinu 4,5 til 7 milljónir króna. Fyrir hatursorðræðu geta legið sektir á bilinu 11,5 til 38 milljónir króna. Ólíklegt er að milljarðamæringarnir Rowling og Musk hafi miklar áhyggjur af sektunum, annað gildir um hugsanlega fangelsisdóma.
Að sögn Boudi er kæran hluti af baráttu Khelif fyrir réttlæti, reisn og heiðri. Auk áðurnefndra nafna er henni beint gegn ótilgreindum notendum á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, þar sem hatursorðræða gegn henni hefur fengið að grassera.
„Það sem við erum að óska eftir er að saksóknari rannsaki ekki aðeins þetta fólk heldur hvern sem hann telur eiga sök. Ef málið fer fyrir rétt þá muni þau þurfa að svara til saka,“ sagði lögmaðurinn.
Þó að málið hafi verið kært í Frakklandi þá eigi að vera hægt að sækja fólk til saka í öðrum löndum.
Saksóknaraembættið í Frakklandi staðfesti í dag að það hefði hafið rannsókn á málinu byggt á kæru Khelif. Ekki voru nefnd nein nöfn í því samhengi.
Rannsóknin er fjórþætt og lýtur að netníði um kyn einstaklings, móðgandi ummæli um kyn einstaklings, móðgandi ummæli um uppruna einstaklings og opinbera hvatningu til mismununar.