RMC í Frakklandi segir að PSG sé farið að setja meiri þunga í það að fá Jadon Sancho en Manchester United vill 51 milljón punda fyrir hann.
Verðmiðinn er líklega enginn tilviljun en PSG vill fá 51 milljón punda fyrir Manuel Ugarte sem Manchester United vill kaupa.
United er til í selja Sancho í sumar þrátt fyrir að hann og Erik ten Hag hafi náð sáttum í sumar.
Sancho var lánaður til Dortmund í janúar og sýndi þar ágætis takta.
Sancho kom til United fyrir þremur árum á 75 milljónir punda en hefur aldrei náð flugi á Old Trafford.