Juan og Farooq fundust í Toyota Rav 4-bifreið sem brunnið hafði til kaldra kola og leiddi rannsókn í ljós að þeir höfðu verið skotnir áður en kveikt var í ökutækinu.
Juan og Farooq ráku saman ferðaþjónustufyrirtækið Empire Holidays og störfuðu í Lundúnum.
Það voru áhyggjufullir aðstandendur þeirra sem höfðu samband við lögreglu eftir að þeir skiluðu sér ekki heim til Bretlands úr vinnuferð til Norðurlandanna á tilsettum tíma.
Höfðu þeir flogið til Kaupmannahafnar þar sem þeir tóku fyrrnefnda bifreið á leigu áður en þeir óku til Malmö. Lögreglan í Malmö hefur verið með málið til rannsóknar en enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn.
Töluvert hefur verið fjallað um tíða ofbeldisglæpi og skotárásir í Malmö sem tengjast skipulögðum glæpahópum. Ekki leikur grunur á að Juan og Farooq hafi verið viðriðnir eitthvað misjafnt.