Scholtes kom fyrir dómara á dögunum þar sem hann neitaði sök.
Í frétt New York Post kemur fram að dóttirin, Parker, hafi sofnað í bílnum á leiðinni heim þann 9. júlí síðastliðinn. Scholtes sagðist ekki hafa viljað vekja hana og ákveðið að fara inn en skilja bílinn eftir í gangi með loftkælinguna á. Sagði Scholtes að klukkan þarna hafi verið um 14:50.
Það var eiginkona Scholtes og móðir Parker, læknirinn Erika, sem fann stúlkuna í bílnum um klukkan 16 þennan dag og var hún þá meðvitundarlaus í sætinu sínu. Bíllinn var ekki í gangi og mikill hiti í honum, en hitastigið þennan dag fór í tæpar 42 gráður.
Inside Edition birti myndband sem sýnir viðbrögð Scholtes þegar lögregla kom á vettvang. Á einum tímapunkti heyrist lögreglumaður segja við hann að viðbragðsaðilar séu að gera allt til að bjarga lífi hennar. Parker var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi þennan sama dag.
Scholtes var handtekinn þremur dögum síðar og telur lögregla að Parker hafi verið ein í bílnum í þrjár klukkustundir. Á sama tíma var Scholtes að spila tölvuleiki í Playstation. Lögregla fór meðal annars yfir myndefni úr eftirlitsmyndavélum og á einni þeirra sést bifreið Scholtes koma heim klukkan 12:50. Þykir það benda til þess að Scholtes hafi sagt ósatt um hversu langan tíma stúlkan var ein í bílnum.
New York Post segir að SMS-samskipti Scholtes og eiginkonu hans sýni að hann hafi lagt það í vana sinn að skilja dætur sínar eftir úti í bíl. „Ég sagði þér að hætta að skilja þær eftir úti í bíl. Hversu oft þarf ég að segja þér það?,“ stendur til dæmis í einu SMS–i frá Eriku.
Þá sagði sextán ára dóttir úr fyrra hjónabandi í samtali við KVOA–TV að Scholtes hefði ítrekað skilið hana eina eftir úti í bíl í marga klukkutíma í senn. Varð þetta til þess að barnaverndaryfirvöld tóku stúlkuna.
Scholtes var í fyrstu ákærður fyrir morð af annarri gráðu, sem jafnan tengist gáleysi, en eftir því sem rannsókninni vatt fram var henni breytt í morð af fyrstu gráðu og telja sakskóknarar að hann hafi ætlað sér að verða stúlkunni að bana. Verði Scholtes fundinn sekur á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.