Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United mun í vikunni skrifa undir nýjan samning við félagið, samkomulag um slíkt er klárt.
Bruno mun gera þriggja ára samning við United með möguleika á að framlengja um eitt auka ár.
Bruno var með 220 þúsund pund á viku hjá United en nú er fullyrt að hann fari í sama launaflokk og Casemiro sem er launahæsti leikmaður United.
Bruno mun þéna 350 þúsund pund á viku á nýjum samningi. Launin hjá Bruno hækka því um 22 milljónir á viku og verða nú 62 milljónir króna á viku.
Bruno hefur verið jafn besti leikmaður United síðustu fjögur árin og var gerður að fyrirliða liðsins á síðasta ári.