fbpx
Mánudagur 12.ágúst 2024
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Mörg ríki hanga milli vonar og ótta á húninum í Brussel

Eyjan
Mánudaginn 12. ágúst 2024 08:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru í raun öll ríki álfunnar sem sækja það fast og með öllum ráðum að komast inn í ESB og fá evru, nema þá Bretland, sem gekk úr ESB á grundvelli blekkinga, ósanninda og rangfærslna þeirra íhalds- og afturhaldsafla sem fyrir útgöngu stóðu, og svo Ísland, trúlega mest af ótta við það að við inngöngu og upptöku evru, myndi sú sérhagsmunagæzla og það spillingar- og klíkuveldi, sem íslenzka krónan tryggir í sessi, falla.

Norðmenn, sem hafa verið tvístígandi vegna ríkra þjóðernistilfinninga, sérstaklega landsbyggðarmanna, virðast nú hafa tekið af skarið og ætla að stefna á nýja aðildarumsókn, alla vega á nýja öfluga umræðu um hana. Ógnin úr austri, Pútín, opnar augu Evrópubúa enn betur en áður var um nauðsyn náinnar samvinnu og óskoraðrar samstöðu í Evrópu. ESB er kjarni hennar. Ný umsókn Noregs um aðild virðist ætla að verða stóra kosningamál Norðmanna 2025.

Það regluverk, sem frá ESB kemur og byggir á grunnstefnu og grunngildum ríkjasambandsins, gengur út á að tryggja:

  1. Lýðræðislegar leikreglur og réttaröryggi
  2. Harða viðspyrnu við klíkuskap og spillingu
  3. Jafnræði milli þjóðfélagshópa
  4. Sérstaka vernd minnihlutahópa
  5. Neytendavernd og matvælaöryggi
  6. Heilsuvernd
  7. Velferð og öryggi manna – heima fyrir, á ferðalögum og á vinnustað
  8. Dýra-, náttúru- og umhverfisvernd; við eigum bara eina jörð
  9. Réttindi almennings gagnvart alþjóðlegum stórfyrirtækjum, svo sem flugfélögum, bönkum og símafélögum
  10. Eftirlit með því, að alþjóðlegu risafyrirtækin borgi sanngjarna skatta

Í þessari stefnumörkun og regluverki eru sem sé harðar kröfur settar fram og verða þau þjóðríki, sem vilja verða aðildarríki, að innleiða í sín lög ákvæði, sem ganga skýrt í þessa átt, og svo, eftir aðild, fylgja þeim stíft og með sannfærandi hætti eftir.

Í ESB-ríkjasambandinu eru nú 27 evrópsk þjóðríki. Tyrkland reyndi fyrst að komast inn 1987, en þá hét bandalagið enn EEC (European Economic Community), en því var breytt 1993 í EU (European Union).

Tyrkland hefur því í 37 ár verið að reyna – með flestum eða öllum ráðum – nú nýlega með kúgunartilraun í sambandi við inngöngu Svíþjóðar í NATO – auðvitað allt annað mál, sýnir örvæntingu Erdogans – að komast inn í sambandið til að geta notið þeirra fríðinda og tryggt sér þá velferð, þá hagsmuni og það öryggi, sem sambandið býður upp á.

Allar tilraunir landsins hafa þó strandað á því að landið, stjórnendur þess, nú síðustu áratugina Recep Erdogan, hafa hunzað flestar grunnreglur ESB um lýðræði, mannréttindi, réttaröryggi og baráttuna gegn spillingu.

Í raun gildir það sama um öll hin ríkin 9, sem hafa verið að reyna að komast inn í ESB, sum þeirra líka í meira en áratug. Umsóknir hafa strandað á því að þau uppfylla ekki kröfurnar 10, sem ég listaði upp hér í byrjun, en ESB hvikar ekki frá neinni þeirra, einkum og alls ekki 1, 2 og 3.

Ríkin 9, sem eru í biðröðinni, og eru nú í samráði við ESB að reyna að bæta sitt lýðræði, siðferði, jafnrétti og mannréttindi borgaranna, eru: Albanía, Bosnía-Hersegóvina, Georgía, Kósóvó, Moldavía, Norður Makedónía, Serbía, Svartfjallaland og Úkraína.

Hvað Úkraínu varðar, þá hefur ESB samþykkt sérstaka meðferð fyrir þá, nokkurs konar flýtimeðferð, til að styrkja Úkraínumenn, bæði siðferðislega og efnahagslega, í baráttunni gegn Rússlandi Pútíns. Er þetta staðfesting Evrópu á því að hún líti á Úkraínu sem „eina af okkur“; hluta af Evrópu. Sú viðurkenning virðist Úkraínumönnum afar mikilvæg og dýrmæt, en það er greinilega eitt grundgilda Úkraínumanna, að teljast til evrópskra þjóða, mannfræðilega og menningarlega.

Í raun er það umhugsunarefni að á sama tíma og nánast öll þau Evrópuríki, sem ekki eru í ESB, eru með ráð og dáð að reyna að komast í sambandið og fá evruna sem gjaldmiðil til að tryggja efnahag sinn og stöðugleika hans, lága vexti og aukna velferð, skuli Ísland – valdaelítan hér – ekki einu sinni vilja skoða eða ræða málið. 

Ekki er annað að sjá, en að ýmsir valdamenn, Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi og aðrir forsvarsmenn sérhagsmunagæzlunnar, og þá um leið klíkuskaparins og spillingarinnar í landinu, nánast stirðni upp ef málið ber á góma, hvað þá að þeir séu til í að láta á það reyna, fyrst hvort þjóðin vilji fara í nýja óskuldbindandi umsókn eða framhaldsviðræður á grundvelli þeirrar umsóknar sem var lögð inn 2009/2010, og svo í framhaldinu, ef niðurstaða þjóðaratkvæðis verður á þann veg, nýjar samningaumleitanir sem auðvitað væru líka opnar og án fyrir fram skuldbindinga.

Ótti ESB-andstæðinga við ESB-regluverkið er eflaust margþættur, en efst stendur væntanlega það að við inngöngu í ESB og upptöku evru myndi sú sérhagsmunagæzla og það spillingar- og klíkuveldi, sem íslenzka krónan leyfir, falla. Yrði erfitt fyrir valdaklíkuna, valdapótintáta sjálfstæðismanna og Framsóknar, sem hafa mikið skipt með sér kökunni – tryggt sér og sínum sérstöðu, hagsmuni og forgang, þar sem almenningur hefur oftast mætt afgangi – eftir sleitulausa valdahandhöfn í hálfa eða heila öld; missa spottana, til að kippa, í úr höndum sér.  

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekki spurning um hjartalag heldur leiðaval

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekki spurning um hjartalag heldur leiðaval
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Einn af forverum Ásmundar Einars lætur hann heyra það – Segir sorglegt og alvarlegt hvernig haldið sé á málefnum grunnskóla

Einn af forverum Ásmundar Einars lætur hann heyra það – Segir sorglegt og alvarlegt hvernig haldið sé á málefnum grunnskóla
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Svona getur Joe Biden orðið versta martröð Repúblikana á síðustu mánuðum sínum í embætti

Svona getur Joe Biden orðið versta martröð Repúblikana á síðustu mánuðum sínum í embætti
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón segir samgöngumál í algjörum ólestri og leggur til úrbætur

Jón segir samgöngumál í algjörum ólestri og leggur til úrbætur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Fréttastofa RÚV í fýlu – getur ekki falið svekkelsið

Orðið á götunni: Fréttastofa RÚV í fýlu – getur ekki falið svekkelsið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum stórkaupmaður leggur til róttækar aðgerðir til að bæta hag fátækra á Íslandi

Fyrrum stórkaupmaður leggur til róttækar aðgerðir til að bæta hag fátækra á Íslandi