Victor Osimhen, framherji Napoli, er búinn að biðja um sölu frá félaginu en þetta staðfestir yfirmaður knattspyrnumála félagsins.
Giovanni Manna er yfirmaður knattspyrnumála Napoli og viðurkennir hann að allar líkur séu á að sóknarmaðurinn sé að kveðja í sumar.
Chelsea er sterklega orðað við Osimhen sem myndi þó kosta háa upphæð og allt að 100 milljónir evra.
,,Victor Osimhen hefur beðið um sölu. Hann vill fara annað,“ sagði Manna.
,,Staðan er mjög skýr í dag, það voru möguleikar í boði síðasta sumar. Victor vill fara. Við sjáum hvað gerist á næstu 20 dögum.“