fbpx
Þriðjudagur 28.janúar 2025
Pressan

Konan sem er sökuð um að hafa komið orðrómnum af stað

Pressan
Fimmtudaginn 8. ágúst 2024 12:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bernadette Spofforth, 55 ára bresk kona, er sögð hafa verið sú fyrsta til að halda því fram að ungi maðurinn sem myrti þrjár ungar stúlkur í bænum Southport í síðustu viku hafi verið hælisleitandi.

Allt hefur verið á suðupunkti í Bretlandi síðustu daga vegna mótmæla og óeirða þjóðernissinna og hægriöfgafólks sem mótmælt hafa stefnu Bretlands í innflytjendamálum. Sá orðrómur að drengurinn væri hælisleitandi átti ekki við nein rök að styðjast, en hann er fæddur og uppalinn á Bretlandseyjum og sonur innflytjenda frá Rúanda.

Vefútgáfa The Sun segir að Bernadette hafi birt færslu á samfélagsmiðlunum X stuttu eftir voðaverkin í Southport þar sem hún sagði að „Ali Al-Shakati“ væri sá grunaði í málinu.

Sagði hún að hann væri hælisleitandi sem hefði komið sjóleiðina til Bretlands á síðasta ári og hefði verið á einskonar eftirlitslista bresku leyniþjónustunnar, MI6. Bætti hún við að ef þetta væri rétt yrði allt vitlaust.

Allt var þetta uppspuni frá rótum og hinn grunaði hét ekki Ali Al-Shakati og var ekki hælisleitandi. Pilturinn sem er í haldi heitir Axel Rudakubana og hefur hann verið ákærður fyrir þrjú morð og tíu manndrápstilraunir. Hann er sem fyrr segir sonur innflytjenda frá Rúanda sem komu löglega til Bretlands árið 2002.

Í frétt The Sun kemur fram að Bernadette neiti að hafa verið sú fyrsta til að dreifa þessum falska orðrómi. The Sun segir aftur á móti að færsla hennar hafi farið á mikið flug á mjög skömmum tíma og rússnesk nettröll meira að segja að gert í því að ýta undir dreifingu færslunnar.

Bernadette er þriggja barna móðir og búsett í stóru og miklu húsi í Chesire. Hún segir í samtali við Daily Mail að hún sé í áfalli yfir því að vera grunuð um að koma þessum orðrómi af stað. Hún hafi fengið upplýsingarnar um Ali Al-Shakati frá ónefndum einstaklingi í Southport. Í fréttinni kemur þó fram að henni hafi ekki tekist að færa neinar sönnur á það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nokkur merki um að einhverjum líki ekki við þig

Nokkur merki um að einhverjum líki ekki við þig
Pressan
Í gær

Hér er besti matur í heimi

Hér er besti matur í heimi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný tafla með mangóbragði vekur vonir fyrir 1,5 milljarð manna

Ný tafla með mangóbragði vekur vonir fyrir 1,5 milljarð manna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna er svefn svo mikilvægur þegar kemur að ævilengd

Þess vegna er svefn svo mikilvægur þegar kemur að ævilengd
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllilegar heimilisaðstæður enduðu með fjölskylduharmleik – „Tilhugsunin um að þeir hafi grátið og öskrað mun ásækja mig að eilífu“

Hryllilegar heimilisaðstæður enduðu með fjölskylduharmleik – „Tilhugsunin um að þeir hafi grátið og öskrað mun ásækja mig að eilífu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjórinn bannar íbúunum að vera veikir – „Forðist íþróttir, ferðalög og slys heima“

Bæjarstjórinn bannar íbúunum að vera veikir – „Forðist íþróttir, ferðalög og slys heima“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi mynd varð stórtækum fíkniefnasmyglurum að falli

Þessi mynd varð stórtækum fíkniefnasmyglurum að falli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skyndilega farin að fylgja Trump á miðlum Meta og geta ekki hætt því – „Þetta er bara fasísk áróðursmaskína á fullri ferð“

Skyndilega farin að fylgja Trump á miðlum Meta og geta ekki hætt því – „Þetta er bara fasísk áróðursmaskína á fullri ferð“