Burnely vill fá 30 milljónir punda fyrir Sander Berge en Manchester United er komið á eftir honum.
United hefur verið að eltast við Manuel Ugarte hjá PSG en félagið telur verðmiðann hjá Frökkunum óraunhæfan.
Berge er 26 ára norskur landsliðsmaður sem var áður hjá Sheffield United.
Tölfræði Berge á síðustu leiktíð var nokkuð góð þrátt fyrir að Burnley hafi verið í alls konar vandræðum.
Berge er einnig orðaður við fleiri lið á Englandi en United er að skoða fleiri kosti en hann.