Arsenal er farið að blanda sér í baráttuna um Victor Osimhen framherja Napoli.
Osimhen var sterklega orðaður við Chelsea en enska félagið er hætt við að eltast við framherjann.
Chelsea er að kaupa Samu Omorodion frá Atletico Madrid og því ætlar félagið ekki að eltast lengur við Osimhen.
Sky á Ítalíu segir að Arsenal hafi áhuga á Osimhen sem hefur skorað 76 mörk í 133 leikjum fyrir Napoli.
Einnig segir þar frá áhuga PSG og liða í Sádí Arabíu á framherjanum knáa frá Nígeríu.