Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Demókrata, hefur valið Tim Walz, ríkisstjóra Minnesota, sem varaforsetaefni sitt. CNN greinir frá þessu en Harris mun tilkynna um valið á fundi síðar í dag.
Walz er fyrrverandi menntaskólakennari og þjálfari í bandarískum fótbolta en valið á honum kemur sumum á óvart. Fyrir nokkrum mánuðum hefðu fáir getað séð það fyrir að Walz yrði í þessari stöðu en vinsældir hans hafa aukist gríðarlega á síðustu vikum þökk sé framkomu hans í ýmsum sjónvarpsþáttum. Þykir hann hafa hlýlegt viðmót og kjaftinn fyrir neðan nefið. Lýsa honum margir eins og að hann sé vinalegur frændi.
Þá hefur Walz þegar byrjað að veita Repúblikönum skráveifu. Þannig byrjaði hann fyrstur manna að kalla J.D. Vance, varaforsetaefni Donald Trump, „furðulegan“ og það hefur heldur betur límst á andstæðinginn og farið að hafa áhrif.
Þá vöktu viðbrögð Walz við athugasemd Vance um að Bandaríkjunum væri stjórnað „barnlausum kattarkonum“ líka mikla lukku. „Guð minn góður, þeir réðust á kattarfólk. Gangi ykkur vel með það. Kveikið á internetinu og sjáið hvað kattarfólk gerir þegar þið ráðist á það,“ sagði Walz og sló í gegn.
Walz þykir frjálslyndur en hann vill til að mynda afglæpavæða kanabiss, verkalýðsmál eru honum hugleikin og þá er hann stuðningsmaður fóstureyðinga. Um síðastnefnda málefnið hefur hann látið hafa eftir sér að það snúist um frelsi einstaklingsins. „Gullna reglan sem lætur smábæi virka, svo íbúar séu ekki stöðugt upp á kant við hvorn annan, er: „Láttu aðra í friði og einbeittu þér að sjálfum þér,“ sagði Walz.