Renato Sanches er arftaki Joao Neves hjá Benfica en hann hefur verið kynntur sem nýr leikmaður liðsins.
Sanches er 26 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Benfica og var gríðarlegt efni á sínum tíma.
Ferill Sanches hefur þó aldrei náð hæstu hæðum þrátt fyrir að hafa spilað fyrir lið eins og Bayern Munchen og PSG.
Sanches yfirgaf Benfica fyrir um átta árum en hann gerir nú lánssamning við félagið út tímabilið.
Neves samdi einmitt við PSG á sama tíma en hann var hjá Benfica og gerði fimm ára samning í Frakklandi.