Aaron Wan-Bissaka bakvörður Manchester United er klár í að fara til West Ham ef hann fær veglegan tékka frá United.
West Ham er tilbúið að borga United 18 milljónir punda fyrir Wan-Bissaka en geta ekki boðið honum sömu laun.
Sökum þess vill Wan-Bissaka fá fleiri hundruð milljónir frá United ef hann á að fara.
United hefur ekki tekið afstöðu til þess en vitað er að United þarf að losa Wan-Bissaka.
United vill kaupa Noussair Mazraoui frá FC Bayern en hann kemur ekki nema Wan-Bissaka verði seldur.