Andreas Nyholm, veðurfræðingur hjá dönsku sjónvarpsstöðinni TV2, sagði að svona hár hiti sé nýja normið í Suður-Evrópu.
„Það er góð spurning um hvort maður vilji fara til Krítar eftir 30 ár. Þetta verður óþægilegra með hverju árinu,“ sagði hann og bætti við að hér sé hnattrænni hlýnun um að kenna.
Sebastian Mernild, prófessor í loftslagsbreytingum, sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að þegar hitinn sé orðinn svona hár, þá geti hlýnað enn frekar. „Ég á von á enn heitara sumri í ár en síðustu tvö ár,“ sagði hann.