Teddi Mellencamp gaf fylgjendum sínum „raunveruleikatékk“ með því að birta myndaröð af sem teknar voru nýlega þegar hún fór í sína sextándu húðkrabbameinsaðgerð.
Mellencamp sem þekkt er fyrir framgöngu sína í þáttunum „Real Housewives of Beverly Hills“ og sem dóttir tónlistarmannsins John Mellencamp, segir að þrátt fyrir að myndirnar séu ansi grafískar þá sé hún jákvæðari fyrir aðgerðinni en hún var fyrir viku síðan.
„Aðgerðin er auðveldi hlutinn miðað við það sem felst í því að geta ekki stjórnað því sem er að gerast inni í líkama mínum,“ skrifaði hún í færslu á Instagram og sagði að næsta aðgerð sé fyrirhuguð 19. ágúst.
„Í millitíðinni mun ég elska börnin mín, fá að sjá pabba minn á tónleikum með fullt af vinum mínum, fara á ótrúlegar hestasýningar og gera hlaðvörp með ótrúlegum konum. Ég er lánsöm.“
Á einni myndanna má sjá stórt skurðsvæði á baki Mellencamp áður en það greri í Z-laga ör. Á annarri mynd sem fylgdi aðvörun liggur Mellencamp með andlitið á grúfu á skurðarborði og búið er að fjarlægja stóran hluta af húðinni á baki hennar.
„Opnaðu aðeins þessa mynd ef þú vilt raunverulega sjá hversu mikilvægt er að láta skoða á sér húðina,“ varaði hún fylgjendur sína við.
View this post on Instagram
Mellencamp greindist með annars stigs sortuæxli í október árið 2022, og hefur síðan þá farið í fjölda skurðaðgerða. Nokkrum mánuðum síðar greindi hún frá því að skurðaðgerðir hefðu gengið vel og meinið hefði verið tekið, en hún þyrfti að fara í húðskoðun á fjögurra til sex vikna fresti. Í september 2023 sagði Mellencamp að læknar hefðu uppgötvað fleiri sortuæxli.
„Á þessum tímapunkti var ég farin að blokka út sumt af því sem gerðist. Ég svaf kannski tvö tíma á nóttu vegna þess að hausinn á mér var bara á yfirsnúningi,“ sagði Mellencamp á þeim tíma, en hún þurfti einnig að gangast undir stóran útskurð á öxlinni, sem hún segir hafa verið þess virði.