Kristján segir að ástæðan fyrir þessari fjölgun sé meira flakk fólks á milli landa.
„Það er búið að vera fáránlega mikið af henni. Síðustu ár höfum við fengið kannski tvö útköll á ári og núna eru þetta 2-3 í viku og fer bara fjölgandi. Þetta er bara puttalingur frá helvíti,“ segir Kristján við Morgunblaðið.
Þá segir hann að silfurskottum hafi einnig fjölgað og þær séu að verða jafn algengar hér á landi og húsflugur.
Í fréttinni er einnig rætt um önnur skordýr, til dæmis geitunga og lúsmýið sem gert hefur Íslendingum lífið leitt síðustu ár. Gísli Már Gíslason, prófessor í líffræði við Háskóla Íslands, segir að kalt vor hafi seinkað komu lúsmýsins en nú sé það komið í flesta landshluta. Þá hafi vorkuldinn dregið verulega úr þroska geitunga og tekur Kristján undir það.
„Venjulega á þessum tíma hefur maður verið að taka bú á stærð við körfubolta en nú eru þau í handboltastærð. Svo þeir eru að koma sér seint af stað eins og í fyrra,“ segir Kristján við Morgunblaðið.