Karlmaður sem brotist var inn hjá og varaði í kjölfarið við innbrotsþjófum í hverfinu í íbúahópi hverfisins á Facebook segist skotinn sem sendiboðinn í málinu eftir að hann fékk yfir sig athugasemdir um að hann væri að kenna röngum aðilum um.
Í fyrri færslu sinni sagði maðurinn að brotist hefði verið inn í kjallaraíbúð hans, frystir þar tæmdur af matvöru og hann tilkynnt málið til lögreglunnar. Varaði hann íbúa í hverfinu og sagðist hafa orðið var við fyrir nokkrum mánuðum „einhverja menn sem mér sýndist vera hælisleitendur frá austur Evrópu eða mið austurlöndum skoða hús í nágrenni og örugglega mitt hús einnig, ég geri ráð fyrir að þeir hafi verið að kortleggja möguleika á að brjótast inn í hús í þessu hverfi.“ Tók maðurinn fram að glugginn hjá honum væri mjór þannig að það hafi verið barn eða unglingur sem fór inn. Tók hann einnig fram að hann sé ekki rasisti þar sem hann hafi búið erlendis í tæp 20 ár.
Í athugasemdum er manninum ýmist þakkað fyrir að vara aðra íbúa við mögulegum innbrotsfaraldri eða gerðar athugasemdir við að hann tiltaki þjóðerni mannanna.
Nokkrum dögum seinna birti íbúinn aðra færslu þar sem hann segist hafa orðið fyrir töluverðum vonbrigðum með ummæli nokkurra aðila í hópnum eftir að hann varaði við mögulegum innbrotum. „Ég fékk yfir mig athugasemdir um að ég væri að kenna röngum aðilium um þessi innbrot,“ segir maður og segi hafa byggt þá athugasemd sína á þremur atriðum.
„Ég hafði orðið var við aðila, sem var ekki íslendingur, að ganga um nágrennið og skoða inn í garða, einnig hafði komið að húsi mínu aðili frá WOLT sem er heimsendingarþjónusta með verktaka frá ýmsum löndum, þessi aðili bankaði hjá mér og þegar ég kom til dyra þá var hann kominn niður að kjallaraíbúð, þar sem brotist var inn, en þegar ég kallaði þá kom hann og spurði hvort ég væri „einhver“ ég sagði nei og númer hvað húsið væri sem þessi aðili býr, ég fór niður á gangstétt og þá sagði hann mér húsnúmerið, sem var 10 húsum frá mínu húsi, ég benti honum á númerið á mínu húsi og spurði hvort hann gæti ekki lesið og hvaðan hann væri, ég er frá palestínu svaraði hann, í þriðja lagi sagði lögreglan mér þegar ég tilkynnti um innbrot að þeir hefðu grunaðan hóp af innflytjendum / hælisleitendum sem herjuðu á Laugardal og nágrenni.“
Nefndi íbúinn að lokum að fólk mætti hafa hvaða skoðun sem er á þessu hjá honum en upplýsingar frá lögreglu hljóta að skipta máli, „ég var að vara ykkur vinsamlega við innbrotum en það er verið að skjóta sendiboðann í þessu máli.“