Þegar hann verður 12 ára, eftir tæpt ár, tekur ansi ströng regla gildi að sögn Christopher Andersen, sem er rithöfundur og sérfræðingur í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar.
Í samtali við Fox News sagði hann að þegar Georg verður 12 ára megi hann ekki lengur ferðast flugleiðis með föður sínum. Er þetta öryggisráðstöfun sem er gerð til að tryggja að erfðaröðin að krúnunni haldist ef svo illa færi að slys yrði.
Andersen sagði að þegar helstu meðlimir konungsfjölskyldunnar verði 16 ára séu þeir beðnir um að aðstoða við að skipuleggja eigin útför.