Það kom bandarískum ferðamanni mjög í opna skjöldu hversu opnir og vinalegir Íslendingarnir voru sem deildu með honum heitum potti í Drangsnesi í sumar. Gáfu þeir honum í vörina og djömmuðu með honum fram á rauða nótt.
Ferðamaðurinn segir frá þessu á samfélagsmiðlinum Reddit og spyr hvort að þetta sé venjan. Hvort Íslendingar séu allir svona vinalegir.
Segist hann hafa verið einsamall í heitum potti á Drangsnesi á Ströndum fyrir um tveimur vikum síðan þegar fleira fólk fór allt í einu að birtast. Allt í einu voru fjögur í pottinum, svo sex, svo átta, jafn vel fleiri á einhverjum tímapunkti.
„Við sátum svo þröngt að olnbogarnir snertust. Ég ákvað að segja ekkert í fyrstu og synda með straumnum. Það var heillandi að horfa á fólk tala saman á íslensku án þess að kunna tungumálið, að heyra ósögðu félagslegu blæbrigðin,“ segir ferðamaðurinn.
Byrjað var að opna bjóra og hafa gaman þegar hópurinn komst loks að því að hann væri Bandaríkjamaður. Byrjuðu þau þá að tala á góðri ensku og sögðu honum að þau væru á ættarmóti.
„Þau létu mér líða eins og ég væri heiðursmeðlimur í fjölskyldunni. Þetta var það besta í heimi,“ segir ferðamaðurinn. „Þau buðu mér snus (nikótínpúða) og vitaskuld sagði ég ekki nei. Ég spurði þau hvort ég mætti fá bjór og þau gáfu mér hann með glöðu geði (takk ef þið eruð að lesa, ég veit að bjór er dýr á Íslandi.“
Sat hann með fjölskyldunni til klukkan tvö um nóttina. Flest þeirra unnu í ferðaþjónustu. Þau sögðust vera aðdáendur Bandaríkjanna og Texas en kærðu sig ekki um Breta.
„Mín helsta eftirsjá er að ég gat ekki verið lengur í pottinum. Ég þurfti að skila Duster bílnum til Reykjavíkur í hádeginu,“ segir hann. „En þetta var uppáhalds kvöldið mitt í allri tveggja vikna ferðinni.“
Spyr hann hvort að þetta sé algengt, að Íslendingum séu svona afslappaðir í heitum pottum með ókunnugum.
Við vorum öxl í öxl og þau létu mér líða eins og við værum fjölskylda,“ segir hann. Vissulega hefði bjór verið um hönd en að þetta hefði verið einstakt kvöld. „Þetta lét mig vilja búa þarna,“ segir hann.