Daniels er tvíkynhneigð og hefur stundað kynlíf með yfir þúsund manns, bæði körlum og konum.
Hún segir í samtali við news.com.au að karlmenn séu lélegri en konur í rúminu og þeir valdi henni oftar vonbrigðum.
„Karlmönnum er ekki kennt mikilvægir hlutir, eins og hvar snípurinn er, á meðan konur fæðast með slíkan,“ segir hún.
Daniels segir að konur og karlar nálgist kynlíf allt öðruvísi.
„Konur eru mikið mjúkhentari en karlmenn […] Konur lykta líka mikið betur og meirihluti kvenna vill gera vel við bólfélaga sinn,“ segir hún.
„Á meðan hugsa karlmenn bara um sig, að fá fullnægingu og upplifa eigin fantasíu.“
Hún segir einnig karlmenn geri oft ráð fyrir kynlífi þrátt fyrir að vera skítugir og illa lyktandi, á meðan hafi persónulegt hreinlæti aldrei verið vandamál hjá konunum sem hún hefur sofið hjá.
En þetta snýst ekki aðeins um athöfnina sjálfa. Daniels segir að konur séu einnig betri eftir kynlífið, varðandi þrif og að vera til staðar tilfinningalega.
„Karlmenn sem eru góðir í að sjá um mann eftir kynlíf (e. after-care) eru sjaldgæfir og oftast fráteknir,“ segir hún.