Eftir að Joe Biden, sitjandi forseti og forsetaefni Demókrata, ákvað að gefa ekki kost á sér að nýju, munu Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, og Donald Trump, fyrrverandi forseti og forsetaefni Repúblikana, berjast um forsetastólinn í kosningunum í nóvember næstkomandi.
Ljóst er að hörð barátta er fram undan og er það mat margra að engin leið sé að spá fyrir um úrslitin á þessum tímapunkti. En Lichtman telur að Kamala Harris hafi yfirhöndina eins og sakir standa.
Lichtman þróaði spákerfi sem hann kallar „lyklarnir að Hvíta húsinu“ en alls er um að ræða þrettán lykla eða spurningar sem er svarað til að fá niðurstöðu.
Meðal spurninganna er hvort forsetinn sé viðriðinn einhverskonar hneyksli? Er samfélagslegur órói í landinu? Er einhver frambjóðendanna með sérstaklega mikla persónutöfra eða talinn þjóðhetja? Hvernig er staðan í efnahagsmálum, bæði til skamms tíma og langs? Hvernig hefur gengið í utanríkismálum eða stríðsrekstri?
Lichtman telur að Harris sé með hendur á sex lyklum eins og staðan er núna, þar á meðal er Harris ekki viðriðin neinn skandal og hún heldur á lyklunum þegar kemur að efnahagsástandinu bæði til langs og skamms tíma.
Trump er aftur á móti með þrjá lykla og er einn þeirra meirihluti Repúblikana í öldungadeildinni. Þá fær Trump lykil fyrir að sitjandi forseti Demókrata sækist ekki eftir endurkjöri og þá þykir Trump hafa meiri persónutöfra en andstæðingur sinn og raunar sitjandi forseti.
Þrír lyklar eru enn á lausu og velta þeir til dæmis á því hvort einhver samfélagslegur órói sé fram undan í Bandaríkjunum næstu mánuði og hvort bandaríski herinn láti eitthvað til sín taka á næstunni í þeim átökum sem eiga sér stað úti í heimi.
Lichtman hefur ekki gefið út lokaspá sína og veltur það á hvað gerist næstu vikurnar. Hann segir þó í samtali við News Nation að margt þurfi að fara úrskeiðis til að Kamala Harris verði ekki næsti forseti Bandaríkjanna.