Leanne og Heidi voru kennarar á umræddu dansnámskeiði sem 25 börn, einkum stúlkur, á aldrinum sex til ellefu ára sóttu.
Árásarmaðurinn réðst að alls ellefu börnum og voru níu flutt á sjúkrahús. Talið er að Leanne og Heidi hafi ráðist að árásarmanninum og slasaðist Leanne lífshættulega þegar manninum tókst að stinga hana. Heidi slasaðist einnig í árásinni en er ekki í lífshættu.
Í frétt Mail Online kemur fram að maðurinn hafi gengið inn um opnar dyr á dansstúdíóinu og byrjaði hann fyrirvaralaust að ráðast að börnunum. Leanne, sem er 35 ára og menntaður kennari, er eigandi stúdíósins.
Námskeiðið byrjaði klukkan 10 í gærmorgun að staðartíma og átti námskeiðinu að ljúka klukkan 12. Rétt áður en námskeiðinu lauk, eða klukkan 11:47, gekk hinn ungi hnífamaður inn. Ekki er vitað hvað honum gekk til.
Lögregla sagði í gær að tvær konur hefðu verið fluttar á sjúkrahús með áverka eftir eggvopn eftir að hafa reynt að verjast árásarmanninum og koma í veg fyrir að hann réðist á fleiri börn. Eru konurnar sem um ræðir Leanne og Heidi.