fbpx
Þriðjudagur 30.júlí 2024
Fókus

Billy Ray Cyrus rýfur þögnina eftir að upptöku af honum var lekið – Hundskammaði eiginkonuna og kallaði dótturina hóru

Fókus
Þriðjudaginn 30. júlí 2024 09:43

Firerose, Billy Ray Cyrus og Miley Cyrus.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kántrísöngvarinn Billy Ray Cyrus hefur rofið þögnina eftir að einkasamtali hans og eiginkonu hans var lekið á netið.

Hann og eiginkona hans, ástralska söngkonan Firerose, standa nú í ljótum skilnaði eftir sjö mánaða hjónaband.

Fyrst þegar greint var frá skilnaði þeirra í júní kom fram að Cyrus væri dauðfeginn að losna við eiginkonuna sem hafi reynst úlfur í sauðargæru að hans sögn.

„Hann hafði þetta á tilfinningunni allan tímann. Hann telur að hún hafi bara gifst honum út af peningum og álíka. Hann er sannfærður um að hún hafi ekki gifst honum út af ást,“ sagði heimildarmaður People á sínum tíma.

Cyrus sótti um skilnaðinn með vísan til óásættanlegs ágreinings og óviðeigandi hegðunar í hjónabandi. Firerose svaraði skilnaðarkröfunni og sagði skilnaðinn hafa komið henni að óvörum. Hún sagði að Cyrus hafi sótt um skilnað upp úr þurru, degi áður en hún átti að gangast undir tvöfalt brjóstnám í forvarnarskyni. Hún sakaði einnig kántrísöngvarann um andlegt og tilfinningalegt ofbeldi.

„Eiginkonan þurfti að umbera stöðuga neyslu eiginmanns síns samhliða neyslu hans á kannabis sem gerði eiginmanninn bæði ófyrirsjáanlegan og uppstökkan.“

Firerose og Billy Ray Cyrus.

Eins og fyrr segir er skilnaðurinn mjög ljótur og hefur aðeins versnað. Í síðustu viku var upptöku af samtali hans og Firerose lekið. Ekki nóg með að hann hafi kallað hana öllum illum nöfnum þá má heyra hann, í annarri upptöku sem var lekið á sama tíma, kalla dóttur sína, poppstjörnuna Miley Cyrus, hóru og djöfulinn.

Fyrri upptakan er um ein og hálf mínúta og í henni má heyra Cyrus rífast við Firerose um að vera seinn á viðburð.

„Klukkan er 9:15 hálfvitinn þinn. Ég hefði þurft að fara fyrir tveimur klukkutímum,“ sagði Cyrus. People greinir frá.

„Nei […] Þú getur lagt af stað núna og mætt á réttum tíma,“ svaraði Firerose.

Eftir því sem samtalið hélt áfram varð Cyrus reiðari. Hann sagði henni að „grjóthalda kjafti“ og kallaði hana „fokking sjálfselska tík“ þegar hún bað hann um að hætta að öskra á hana.

FIREROSE and Billy Ray Cyrus attend the 16th Annual Academy of Country Music Honors at Ryman Auditorium on August 23, 2023 in Nashville, Tennessee
Mynd/Getty Images

Lögfræðingar Cyrus sögðu í yfirlýsingu til People að lekinn hafi verið lokatilraun Firerose til að kreista peninga undan klónum á kántrísöngvaranum.

„Cyrus hefur viðurkennt að hann hafi verið orðinn mjög þreyttur og reiður undir lok hjónabandsins þegar hann byrjaði að afhjúpa raunverulegar hvatir Firerose til að giftast honum.

Varðandi upptökuna, þá tók hún hann upp án hans vitundar og auðvitað var hún að passa sig að vera róleg og haga sér vel, vitandi að hún væri að taka upp.“

Rýfur þögnina

Billy Ray Cyrus tjáði sig um lekann í færslu á Instagram en minntist ekki orði á seinni upptökuna og það sem hann sagði um dóttur sína.

Cyrus sagði að hann hafi verið kominn að þolmörkum. „Hún var að reyna að taka yfir feril minn, líf mitt og sverta mannorð Cyrus fjölskyldunnar. Sjáumst í dómssal.“

Skjáskot/Instagram

Miley komin með nóg

Erlendir miðlar greina frá því að Miley sé komin með nóg af föður sínum og hafi engan áhuga að reyna að laga sambandið við hann eftir að hafa heyrt hvað hann hafði að segja um hana á bak við luktar dyr.

„Allir vita að þessi djöfull er hóra,“ sagði hann um dóttur sína.

Miley Cyrus performs onstage during the 66th GRAMMY Awards at Crypto.com Arena on February 04, 2024 in Los Angeles, California
Miley Cyrus. Mynd/Getty Images

„Það er engin afsökun, aldrei, fyrir föður að kalla dóttur sína hóru. Ef hún bar einhverja virðingu fyrir honum þá er hún farin, fyrir henni er hann gott sem dauður,“ segir heimildarmaður DailyMail.

Miley hætti að tala við föður sinn eftir að hann sótti um skilnað frá móður hennar, Tish Cyrus árið 2022 eftir 28 ára hjónaband.

Í seinni upptökunni, sem má hlusta á hér að ofan á mínútu 1:32, má heyra Cyrus tala um sig í þriðju persónu og fara hörðum orðum um Tish. Hann kallaði hana meðal annars lygara og svikara.

„Í fullri hreinskilni kom það Miley ekki á óvart að faðir hennar hafi látið þetta út úr sér,“ sagði heimildarmaður DailyMail.

Málið hefur vakið mikla athygli og spyrja sumir sig hvort þetta tákni endalok kántrísöngvarans sem var áður dýrkaður og dáður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Katy Perry með sjóðheitt flugglæfrabragð í næsta myndbandi – Mun það floppa líkt og síðasta lag?

Katy Perry með sjóðheitt flugglæfrabragð í næsta myndbandi – Mun það floppa líkt og síðasta lag?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því

Eyddu 8-9 milljónum í brúðkaupið en sjá ekki eftir því
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán birtir bikinímynd í tilefni 45 ára afmælis

Ásdís Rán birtir bikinímynd í tilefni 45 ára afmælis
Fókus
Fyrir 4 dögum

Taka fyrir umdeilt mataræði hjá stæltum áhrifavöldum – Segja ómenntaða „sérfræðinga“ orsaka óreiðuna

Taka fyrir umdeilt mataræði hjá stæltum áhrifavöldum – Segja ómenntaða „sérfræðinga“ orsaka óreiðuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Háklassa vændiskona rukkar 1,4 milljónir fyrir endaþarmsmök – „Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum“

Háklassa vændiskona rukkar 1,4 milljónir fyrir endaþarmsmök – „Ég held að karlmenn njóti þess að sjá konur í óþægilegum aðstæðum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ingi skorar á Íslendinga að finna sig – Klukkarinn fær 100 þúsund í fundarlaun

Ingi skorar á Íslendinga að finna sig – Klukkarinn fær 100 þúsund í fundarlaun