Í þræði á Reddit-undirvefnum Visiting Iceland, sem eins og nafnið gefur til kynna er vettvangur fyrir ferðamenn til að deila reynslu sinni af Íslandi, segir ferðamaðurinn að hugur hans sé hreinlega fastur á Íslandi eftir ferðina. Segir ferðamaðurinn að þetta sé eins og að vera með heimþrá en tekur fram að það sé kannski ekki rétta orðið.
„Ég hef ekki upplifað svona friðsæld í langan tíma, hreina loftið þarna er eitthvað annað og mér fannst ég vera andlega nálægt guði og föður mínum heitnum sem lést fyrir nokkrum mánuðum – það var eins og hann væri með mér alla ferðina,“ segir ferðamaðurinn og bætir við að hann sakni Íslands mjög mikið og geti ekki beðið eftir að koma aftur.
Þegar athugasemdirnar undir frásögninni eru skoðaðar kemur í ljós að maðurinn er alls ekki einn um að upplifa þessar tilfinningar.
„Ég hef aldrei saknað neins áfangastaðar sem ég hef heimsótt meira en Íslands. Maður fékk einhverja óvenjulega friðartilfinningu í sálina,“ segir einn á meðan annar bætir við: „Hef upplifað þetta í hvert einasta skipti og ég hef farið níu sinnum. Ég verð hálf dasaður með kökk í hálsinum og brotið hjarta. Svo næ ég áttum og byrja að skipuleggja næstu heimsókn.“
Fleiri taka undir með þessum tveimur.
„Ég kom fyrst í nóvember og upplifði þetta sama. Ákvað svo að panta mér aðra ferð sem ég fór í febrúar,“ segir einn. Enn annar segir: „Ég hef komið til Íslands einu sinni, árið 2021, og ég hugsa um þessa ferð nokkrum sinnum í hverri viku. Þetta var líka fyrsta ferðin sem ég fór aleinn og það gerði upplifunina enn einstakari.“