Að sögn lögreglu var hjólið með staðsetningarbúnað og gat eigandinn því fylgst með ferðum hjólsins í rauntíma. Hjólið endaði svo í húsnæði sem eigandinn treysti sér ekki til að fara einn að og reyna að nálgast hjólið. Lögregla hafði upp á hjólinu og kom því til eiganda.
Fleiri mál komu inn á borð lögreglu í gærkvöldi og í nótt.
Lögreglu var tilkynnt um yfirstandandi innbrot í verslun og kom tilkynnandi með góða lýsingu á geranda og fylgdi hann honum eftir þar til lögregla kom á vettvang og handtók þjófinn. Þá gat tilkynnandi einnig bent á hvar þjófurinn hafði falið hluta af þýfinu. Þjófurinn var vistaður í fangageymslu og tekin verður skýrsla af honum þegar hann er búinn að sofa úr sér.