Patrizia Asproni, hjá menningarverðmætasamtökunum Confcultura, sagði í samtali við LBC að Flórens væri borg sem ferðamenn virði ekki. Það séu endurtekin dæmi um dónaskap og óviðeigandi hegðun því fólki finnist það geta hegðað sér eins og því sýnist.
Bacchus er rómverskur guð, guð landbúnaðar, víns og frjósemi.
Styttan sem um ræðir er endurgerð af upprunalegu styttunni en hún er frá 1560 og er geymd á safni. Endurgerðin var sett upp í stað upphaflegu styttunnar árið 2006.
Antonella Ranaldi, lögreglustjóri í Flórens, sagði að ferðamenn séu velkomnir í borginni en þeir verði að sýna minnisvörðum virðingu og skipti þá engu hvort það séu þeir upprunalegu eða endurgerð þeirra.