fbpx
Mánudagur 29.júlí 2024
Pressan

Margir slasaðir eftir stunguárás í Bretlandi – Árásin sögð hafa beinst að ungum stúlkum

Pressan
Mánudaginn 29. júlí 2024 13:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn er látinn og átta slasaðir eftir stunguárás í Southport á vesturströnd Englands í morgun. Breskir fjölmiðlar greina frá því að barn hafi látist í árásinni. Bæði börn og fullorðnir hafa verið flutt undir læknishendur eftir árásina og er einn maður í haldi.

Lögregla er með málið til rannsóknar og er beðið tilkynningar frá henni um atvikið. Fjölmennt lið lögreglu var sent þegar á vettvang sem og sjúkraþyrla og alls þrettán sjúkrabílar.

Í frétt Mail Online kemur fram að árásin hafi beinst að einhvers konar vinnustofu fyrir börn þar sem unnið var með þema tengt tónlistarkonunni Taylor Swift.

Colin Parry, eigandi fyrirtækis skammt frá staðnum þar sem árásin varð, segir við Mail Online að sex eða sjö „ungar stúlkur“ hafi verið stungnar. Sagði hann að aðstæður á vettvangi líktust hryllingsmynd þar sem örvæntingarfullir foreldrar bíða eftir upplýsingum um börn sín.

Talsmaður Alder Hey-barnaspítalans í Southport segir að mikið álag sé á spítalanum og eru foreldrar hvattir til að leita annað með börn sín nema í brýnustu neyð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Draumaferð tveggja bræðra til Dúbaí breyttist í algjöra martröð

Draumaferð tveggja bræðra til Dúbaí breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skelfing grípur um sig á þýskum sumarleyfisstað eftir morð á kráareiganda

Skelfing grípur um sig á þýskum sumarleyfisstað eftir morð á kráareiganda
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ótrúlegt myndband sýnir þegar hvalur hvolfdi bát

Ótrúlegt myndband sýnir þegar hvalur hvolfdi bát
Pressan
Fyrir 5 dögum

Blokkera stefnumótaforrit fyrir samkynhneigða í Ólympíuþorpinu í París

Blokkera stefnumótaforrit fyrir samkynhneigða í Ólympíuþorpinu í París
Pressan
Fyrir 1 viku

Níu manna fjölskylda strandaglópar í Alaska – Horfðu á skemmtiferðaskipið sigla burt með eigur þeirra

Níu manna fjölskylda strandaglópar í Alaska – Horfðu á skemmtiferðaskipið sigla burt með eigur þeirra
Pressan
Fyrir 1 viku

Biden íhugi að stíga til hliðar á næstu dögum

Biden íhugi að stíga til hliðar á næstu dögum