fbpx
Þriðjudagur 30.júlí 2024
433Sport

Víkingur og Valur með talsvert færri stig en á sama tíma í fyrra – Halldór Árna að bæta stigasöfnun Blika

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 30. júlí 2024 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valur er með færri stig en á sama tíma í fyrra í Bestu deild karla, stjörnuprýtt lið Vals hefur hikstað á köflum á þessari leiktíð.

Valur situr í þriðja sæti deildarinnar með 28 stig en á sama tíma í fyrra var Valur með 32 stig. Valur er átta stigum á eftir toppliði Víkings en á leik til góða.

Valur hefur spilað 15 leiki og skorað í þeim 37 mörk sem er sami fjöldi og í fyrstu 15 leikjunum í fyrra, Valur hefur fengið á sig 22 mörk í þessum leikjum sem er átta mörkum meira en á sama tíma í fyrra.

Breiðablik er með 30 stig eftir 15 leiki á þessu tímabili sem er tveimur stigum meira en á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir að hafa fengið gagnrýni hefur Halldóri Árnasyni tekist að bæta stigasöfnun Breiðabliks í deildinni.

Víkingur hefur spilað 16 leiki í deildinni í ár og er með 35 stig sem er sex stigum minna en á sama tíma í fyrra.

Víkingur er á toppi deildarinnar þegar endaspretturinn í venjulegu móti er að fara af stað en ljóst er að titilbaráttan gæti orðið spennandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu mjög umdeildan dóm í Vesturbænum – Dramatískt mark KR kom eftir hann

Sjáðu mjög umdeildan dóm í Vesturbænum – Dramatískt mark KR kom eftir hann
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Kolbeinn Sigþórsson setur glæsilega lúxusíbúð sína í Kópavogi á sölu

Kolbeinn Sigþórsson setur glæsilega lúxusíbúð sína í Kópavogi á sölu
433Sport
Í gær

Mistók að kaupa miðjumann Liverpool eftir viðræður

Mistók að kaupa miðjumann Liverpool eftir viðræður
433Sport
Í gær

Sancho sagður vera búinn að gera samkomulag við eitt stærsta félag í Evrópu

Sancho sagður vera búinn að gera samkomulag við eitt stærsta félag í Evrópu
433Sport
Í gær

Stjarna Liverpool áritaði Real Madrid treyju – Er í sumarfríi með leikmanni sem vill sannfæra hann

Stjarna Liverpool áritaði Real Madrid treyju – Er í sumarfríi með leikmanni sem vill sannfæra hann
433Sport
Í gær

Atvinnulaus í heilt ár en er með óraunhæfar launakröfur

Atvinnulaus í heilt ár en er með óraunhæfar launakröfur