Jayson Molumby, leikmaður West Brom, á mögulega von á löngu banni eftir atvik sem átti sér stað í gær.
Molumby ákvað að kýla andstæðing sinn í andlitið en hann lék með liði sínu í æfingaleik gegn Mallorca.
Allt fór úr böndunum er stutt var eftir af fyrri hálfleiknum og missti Molumby svo sannarlega stjórn á skapi sínu.
Um er að ræða 24 ára gamlan írskan landsliðsmann sem var óánægður með hegðun portúgalska miðjumannsins Samu Costa.
Þetta atvik má sjá hér.
What on earth is West Brom’s Jayson Molumby doing?!
pic.twitter.com/hCJf2WEYOI— Second Tier podcast (@secondtierpod) July 27, 2024