fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Heilsa Sölva hrundi og hann endaði á bráðamóttöku – Þetta vill hann að sérfræðingarnir viti

Ritstjórn DV
Laugardaginn 27. júlí 2024 15:15

Sölvi Tryggvason Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason lenti fyrir rúmum 15 árum í harkalegu ,,burnout” og heilsan hans hrundi gjörsamlega og hann endaði á bráðamóttöku. Í kjölfarið ákvað Sölvi að leita sér upplýsinga um allt sem sneri að heilsu og gerði tilraunir á sjálfum sér.

„Ég flakkaði á milli þess að vera í stanslausum svimaköstum yfir í magakrampa, harkalega höfuðverki, óreglulegan hjartslátt og ótal önnur einkenni. Eftir að hafa ítrekað séð viðmælendur mína tvöfalt í viðtölum og reynt að harka af mér talsvert lengi endaði ég á bráðamóttöku. Á þessum tíma var lítil vitneskja um þessa hluti og ég var því sendur heim með tvær tegundir af lyfjum og engar frekari ráðleggingar. Þau gerðu sama og ekkert og næstu átta mánuði reyndu alls kyns sérfræðilæknar að finna hvað amaði að mér án árangurs. Að endingu sagði heimilislæknirinn við mig: ,,Þú ert að verða mest rannsakaði maður á Íslandi, en athuganirnar benda til þess að þú sért við hestaheilsu.“

Í færslu á Facebook með titilinn „Af sérfræðingum sem vita hvað er best fyrir aðra“ lítur Sölvi til baka yfir síðustu ár.

Fór að gera tilraunir á sjálfum sér

Eftir átta mánaða rannsóknir hjá sérfræðilæknum sem skiluðu engu segir Sölvi að við hafi tekið tímabil af miklu niðurrifi og sannfæringu um að hann væri líklega bara hysterískur og þjakaður af ,,hypochondriu”. 

„En neyðin kennir naktri konu að spinna og ég fór að sækja mér upplýsingar um allt sem sneri að heilsu eins og óður maður og í kjölfarið fór ég að gera tilraunir á sjálfum mér. Og þá fyrst fóru hlutirnir að gerast. Breytingar á matarræði, hreyfingu, svefnvenjum, kælimeðferðir, jarðtenging, öndunaræfingar og fleira fóru að snúa hjólinu í rétta átt. Það sem þetta tímabil kenndi mér var að taka utanaðkomandi ráðleggingum með fyrirvara, enda hafði enginn verið í mínum líkama og vel viljaðir sérfræðingar höfðu ekkert náð að gera fyrir mig þrátt fyrir margra ára nám. Sérstaklega lærði ég að þiggja með enn meiri fyrirvara ráðleggingar frá fólki sem vissi upp á hár hvað væri alls ekki gott fyrir mig, án þess að hafa prófað það sjálft.“

Sölvi segist hafa farið að taka eftir athyglisverðu mynstri. „Þeir sem voru harðastir á því að ég ætti ekki að fara í kalda potta áttu það sameiginlegt að hafa ekki stundað kuldameðferð. Þeir sem voru mest á móti því að ég prófaði föstur áttu það yfirleitt sameiginlegt að hafa ekki fastað. Þeim sem fannst breytingar á matarræði fela í sér öfgar höfðu undantekningarlaust ekki prófað ,,öfgafulla” matarræðið. Þeir sem vildu að ég færi mjög varlega í hreyfingu voru yfirleitt ekki í mjög góðu líkamlegu ásigkomulagi og hreyfðu sig ekki mikið.

Á hinn bóginn áttu þeir sem báru þessum hlutum vel söguna það sameiginlegt að stunda þá reglulega sjálfir. Í Nauthólsvíkinni hitti ég fólk sem hafði stundað sjósund í áraraðir og ég sá á þeim að það var augljóslega að virka vel. Að sama skapi kynntist ég fólki sem fastaði mjög regulega og virkaði vel yfir meðallagi heilbrigt og svo framvegis.“

Háskólamenntaðir með yfirlæti

Sölvi segi það áhugaverðast „að þeir sem vissu mest hvað var best fyrir mig án þess að hafa prófað það á eigin skinni voru yfirleitt með háskólamenntun og gátu þar af leiðandi notað menntunina til að tala af ákveðnu yfirlæti. Semsagt mikill bóklestur og alls kyns þekking án allrar reynslu.“

Bókahilla full af hugleiðslubókum en hugleiddi aldrei

Eitt af því sem Sölvi byrjaði að stunda á þessu tímabili í fyrsta sinn á ævinni var hugleiðsla. Hann kynntist góðum og stórmerkilegum manni sem hafði hugleitt nánast alla daga í meira en áratug og allt hans yfirbragð var stórkostleg auglýsing fyrir hugleiðslu. „Hann virkaði nær alltaf glaður og uppfullur af orku og það var frábært að vera nálægt honum. Það sat í mér þegar hann sagði við mig:

„Sölvi, ef allir sem segjast vera á leiðinni að hugleiða hérna hjá okkur myndu mæta, værum við í miklum vandræðum. Þá þyrftum við líklega að leigja Laugardalshöllina til að halda hugleiðsluna! Ég var einu sinni alveg eins og allir þeir sem eru alltaf á leiðinni að mæta. Þá átti ég heila bókahillu af bókum um hugleiðslu, en hugleiddi aldrei sjálfur. Núna hugleiði ég alla daga, en á engar bækur!” segir Sölvi og heldur áfram:

„Það er stundum talað um að viska verði til þegar þekkingu er breytt í raunverulega persónulega reynslu. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar. Það er áhugavert að nánast í hvert einasta skipti sem tekið er viðtal í fjölmiðlum við einhvern sem segist líða mjög vel á „öfgakenndu” matarræði, eða hafa lagað mikla líkamlega veikleika með ,,öfgakenndum lífsstíl”, spretta dagana á eftir upp sérfræðingar sem fullyrða að þessir hlutir séu stórhættulegir og fólk eigi alls ekki að prófa þá. Þegar ég sé umfjöllun af þessu tagi spyr ég mig alltaf einnar spurningar. Hefur þessi tiltekna manneskja einhvern tíma reynt á eigin skinni það sem hún veit svona djúpt og innilega að sé stórhættulegt fyrir alla aðra?”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Var uppi í sumarbústað þegar hann vann 54 milljónir króna

Var uppi í sumarbústað þegar hann vann 54 milljónir króna
Fréttir
Í gær

Jón Bjarni útskýrir hátt bjórverð á Íslandi – „Þetta er í rauninni afskaplega einfalt“

Jón Bjarni útskýrir hátt bjórverð á Íslandi – „Þetta er í rauninni afskaplega einfalt“
Fréttir
Í gær

Skemmdarverkin í Frakklandi: Fertugur rússneskur kokkur grunaður um græsku

Skemmdarverkin í Frakklandi: Fertugur rússneskur kokkur grunaður um græsku
Fréttir
Í gær

Skemmdarverk unnin í nótt: Franska lestarkerfið lamað rétt áður en opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram

Skemmdarverk unnin í nótt: Franska lestarkerfið lamað rétt áður en opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grímur: Þetta hefur breyst síðan hann skrifaði færsluna sem vakti athygli margra 

Grímur: Þetta hefur breyst síðan hann skrifaði færsluna sem vakti athygli margra 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“