Það eru margir sem kannast við nafnið Memphis Depay en um er að ræða landsliðsmann Hollands og fyrrum leikmann Manchester United.
Memphis er án félags í dag en hann var síðast á mála hjá spænsku stórliðunum Barcelona og Atletico Madrid.
Kærasta Memphis er ansi áhugaverð kona en hún heitir Coral Gutierrez og er fyrirsæta sem og áhrifavaldur á Spáni.
Gutierrez er þekkt fyrir ýmislegt en það helsta er að hún elskar sjálf að birta myndir af sér berbrjósta.
Fyrirsætan þykir gullfalleg og er svo sannarlega í frábæru standi en hún er dugleg að birta myndir af sér á samskiptamiðlum.
Gutierrez hvetur konur til að gera slíkt hið sama á sínum samskiptamiðlum en þetta hafði hún að segja við spænska fjölmiðla fyrir nokkrum mánuðum:
,,Við þurfum ekki að skammast okkar. Okkar líkami, okkar sál. Elskið eigin líkama!“ sagði Gutierrez.
Myndir af henni má sjá hér.