Noussair Mazraoui, leikmaður Bayern Munchen, er ekki á leið til West Ham eftir allt saman. Sky í Þýskalandi segir frá þessu.
Því var haldið fram í gær að bakvörðurinn væri við það að ganga í raðir West Ham. Skiptin virðast hins vegar ætla að detta upp fyrir. Bayern og West Ham höfðu náð samkomulagi en ekki tókst að semja við leikmanninn sjálfan.
Þetta verða að teljast jákvæð tíðindi fyrir Manchester United, sem einnig er á eftir Mazraoui. Því er nú haldið fram að félagið sé þegar kominn vel á veg með viðræður við leikmanninn sjálfan.
Tilboð West Ham sem Bayern samþykkti hljóðaði upp á 13 milljónir punda auk árangurstengdra bónusgreiðslna síðar meir. Það má því gera ráð fyrir að United þyrfti að reiða fram svipaða upphæð.