Opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram í borginni í dag og telur franska lögreglan að ekki sé um neina tilviljun að ræða að þessi ákveðna tímasetning hafi verið valin.
Skemmdarverkin hafa haft áhrif á ferðir mörg hundruð þúsund farþega, þar á meðal þeirra sem eru á leið á opnunarhátíðina og ekki síður þeirra íbúa Parísar sem eru á leið í langþráð sumarleyfi meðan á leikunum stendur.
Skemmdarverkin í Frakklandi: Fertugur rússneskur kokkur grunaður um græsku
Í morgun var greint frá því að grunsemdir væru uppi um að Rússar hefðu skipulagt skemmdarverkin. Nú eru spjótin hins vegar farin að beinast að öfgavinstrimönnum eða róttækum umhverfisverndarsinnum, samkvæmt heimildarmanni Daily Mail innan frönsku leyniþjónustunnar.
Enn sem komið er hefur enginn lýst yfir ábyrgð á skemmdarverkunum og frönsk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um hugsanlegan sökudólg.
Heimildarmaðurinn segir að skemmdarverkin minni á aðferðir sem umhverfisverndarsinnar hafa áður notað. Þarna hafi augljóslega verið að verki einstaklingar sem þekktu veikleika lestarkerfisins og á hvaða staði væri best að ráðast á til að valda sem mestum glundroða.
Ýmsir eru þó enn þeirrar skoðunar að Rússar hafi verið þarna að verki enda grunnt verið á því góða á milli Rússlands og Frakklands að undanförnu. Alex Kokcharov, sérfræðingur í þjóðaröryggi, segir við Daily Mail að Rússar hafi svo sannarlega getuna til að fremja skemmdarverk á borð við þessi í morgun í Evrópu og þá sérstaklega í Frakklandi.
Jean de Gliniasty, fyrrverandi sendiherra Frakklands í Moskvu, sagði við franska fjölmiðla í morgun að vel gæti verið að Rússar hafi verið á bak við skemmdarverkin. Ekki mætti þó útiloka möguleikann á því að öfgasinnaðir vinstrimenn eða róttækir umhverfisverndarsinnar hefðu verið að verki.