Um var að ræða fyrri leik liðanna í 2. umferð undankeppninnar og lauk honum með 1-2 sigri gestanna frá Kósóvó.
„Áhugamennskan hjá Blikum náði nýju lágmarki í kvöld þegar þeir klikkuðu á að vera búnir að skrá Kristófer Inga í hóp hjá UEFA,“ skrifaði Blikinn og sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson um málið á X í gærkvöldi.
Hann fékk þá svar frá Ásgeiri Baldurs, formanni Breiðabliks.
„Slæm mistök og gífurlega pirrandi en ég held að fáir fari gegnum lífið án þess að gera mistök, bæði áhugamenn og atvinnumenn.“
Kristján sagði þá að þessi umræddu mistök gætu hreinlega orðið of dýr.
„Mistök eru ekki sama og mistök. Þetta gæti orðið ófyrirgefanlegt. Sérstaklega fyrir leikmanninn sjálfan.“
Seinni leikur liðanna fer fram á þriðjudag og ljóst að Breiðablik þarf sigur þar.
Slæm mistök og gífurlega pirrandi en ég held að fáir fari gegnum lífið án þess að gera mistök, bæði áhugamenn og atvinnumenn
— Ásgeir Baldurs (@AsgeirBald) July 25, 2024