Conor Gallagher, leikmaður Chelsea, gæti verið að semja á óvæntum stað en það er TalkSport sem greinir frá.
Chelsea er að reyna við Gallagher og hefur reynt í allt sumar en hann er ekki inni í myndinni hjá Enzo Maresca, nýjum stjóra liðsins.
Atletico Madrid er talið vera í viðræðum við Chelsea um Gallagher en liðið á það til að semja við leikmenn á Englandi.
Kieran Trippier, landsliðsmaður Englands, og Matt Doherty, fyrrum leikmaður Tottenham, hafa til að mynda leikið fyrir félagið.
Gallagher er 24 ára gamall enskur landsliðsmaður en hann hefur ekki fengið nýtt samningstilboð frá Chelsea og verður laus allra mála 2025.