fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
433Sport

Arsenal jafnar líklega eigið félagsmet með næstu sölu

Victor Pálsson
Föstudaginn 26. júlí 2024 07:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal gæti verið að jafna eigið félagsmet en liðið er í viðræðum við Fulham um fyrrum undrabarnið Emile Smith-Rowe.

Smith-Rowe átti að verða einn af framtíðarleikmönnum Arsenal en hefur aðeins byrjað þrjá úrvalsdeildarleiki síðan í ágúst 2022.

Ljóst er að framtíð hans liggur annars staðar en Arsenal vill fá 35 milljónir punda fyrir þennan ágæta miðjumann.

Það gæti gert Englendinginn að dýrustu sölu Arsenal í sögunni en hann myndi deila því meti með Alex-Oxlade Chamberlain sem fór til Liverpool á sínum tíma.

Athletic greinir frá en leikmaðurinn sjálfur hefur náð samkomulagi við Fulham og er líklega á leið til félagsins.

Meiðsli hafa sett strik í reikning Smith-Rowe sem var einnig orðaður við Crystal Palace.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítalirnir setja sig í samband við Chelsea

Ítalirnir setja sig í samband við Chelsea
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Settu tilraunir sínar á ís vegna dómsmáls Alberts

Settu tilraunir sínar á ís vegna dómsmáls Alberts
433Sport
Í gær

Sjáðu myndband frá svakalegri uppákomu í Bandaríkjunum í nótt – Stjörnurnar slógust

Sjáðu myndband frá svakalegri uppákomu í Bandaríkjunum í nótt – Stjörnurnar slógust
433Sport
Í gær

Snýr aftur heim

Snýr aftur heim
433Sport
Í gær

Brunaútsala hjá United – Þessir sjö leikmenn nú til sölu

Brunaútsala hjá United – Þessir sjö leikmenn nú til sölu
433Sport
Í gær

Hvernig er að vinna með Ten Hag? – ,,Hvernig hann tók við mótlætinu var hjálpsamlegt“

Hvernig er að vinna með Ten Hag? – ,,Hvernig hann tók við mótlætinu var hjálpsamlegt“