fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Hart tekist um á hárlit Sunnevu – „Þau eru að plata þig“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 12:38

Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfélagsmiðla- og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir skipti netverjum um allan heim í fylkingar þegar hún spurði hvort það fari henni betur að vera ljóshærð eða dökkhærð.

Sunneva birti myndband á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem „filter“ lét hana virðast vera dökkhærða. Hún spurði síðan netverja: „Ljóshærð eða dökkhærð?“

Ekki stóð á svörum en myndbandið hefur fengið yfir 200 þúsund áhorfa og yfir 320 athugasemdir.

@sunnevaeinars Replying to @kayla ♬ оригинальный звук – ˗ˏˋ text overlays ˎˊ˗

Vinsældir myndbandsins hafa náð út fyrir landsteinana og virtist fólk hafa miklar skoðanir á hárlit Sunnevu.

„Dökkhærð en mjög dökkt,“ sagði einn netverji.

„Vertu áfram ljóshærð, þau eru að plata þig,“ sagði annar.

Bandarísk hárgreiðslukona deildi sinni skoðun: „Þú ert glæsileg svona ljóshærð en ég myndi bæta við smá dýpt! Aðeins að dekkja rótina og smá lowlights.“

„Ljóshærð. Þau sem segja dökkhærð eru ekki vinir þínir,“ sagði ein.

„Ég myndi lita þig alveg dökkhærða, nánast svarthærða,“ sagði önnur.

Þetta er aðeins brot af því sem fólk hafði að segja.

Sunneva hefur verið ljóshærð í mörg ár og virðist ekkert ætla að breyta því í náinni framtíð, en hver veit!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju