fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Magnús Hlynur hrekkti eiginkonuna og þurfti að sofa á sófanum í nótt

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 10:07

Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á Stöð 2, þurfti að dúsa á sófanum í nótt eftir að hann birti gamla mynd af eiginkonunni á Facebook.

„Skaust í pulló hér á Selfossi áðan og ákvað að fara inn í afgreiðsluna því bílaröðin var svo löng. Þá blasti þessi elska meðal annars við mér í myndaramma en hún vann nokkuð lengi í pylsuvagninum og var mjög, mjög ánægð þar,“ skrifaði Magnús Hlynur á Facebook og birti mynd af eiginkonu sinni, Önnu Margréti Magnúsdóttur, frá því að hún vann í Pylsuvagninum.

Anna Margrét var ekki sátt við eiginmanninn og skrifaði við færsluna: „Takk fyrir ekkert Maggi minn… Sófinn er þinn í nótt.“

Færslan hefur vakið mikla athygli og sló athugasemd Önnu Margrétar sérstaklega í gegn.

Ein sagði: „Þetta var nú skemmtilegur tími Anna mín. Ekki láta svona við hann Magga þinn.“

„Já góður tími…en það hefði nú ekki drepið mig að þarna 20 ára gamla ég hefði ekki lítið út eins og 55 ára!!!! Ég er viss um að þið fáið meira fyrir pylsuvagninn ef þið fjarlægið þessa mynd úr anddyrinu!!!!“ sagði þá Anna Margrét.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Snýr aftur heim
Fókus
Fyrir 2 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju