Manchester United er til í að selja sjö leikmenn í sumar til að fá aðra inn um dyrnar. ESPN segir frá þessu.
United hefur þegar eytt tæpum 90 milljónum punda í þá Leny Yoro og Joshua Zirkzee í sumar en knattspyrnustjórinn Erik ten Hag vill fleiri leikmenn. Nánar til tekið er hann að leita að miðjumanni, öðrum miðverði og hægri bakverði.
Það er ljóst að United þarf að losa aðra leikmenn til að það gangi upp í bókhaldinu og heldur ESPN því fram að félagið sé til í að skoða tilboð í þá Victor Lindelöf, Aaron Wan-Bissaka, Christian Eriksen, Harry Maguire, Scott McTominay, Jadon Sancho og Antony.
Samanlagt kostuðu þessir leikmenn United vel yfir 300 milljónir punda, en ljóst er að félagið fær ekki neitt nálægt þeirri upphæð fyrir þá nú.