fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fókus

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd

Fókus
Miðvikudaginn 24. júlí 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska leikkonan Halle Berry fagnaði 20 ára afmæli kvikmyndarinnar Catwoman í gær með því að birta myndir af sér fáklæddri. 

Leikkonan sem er orðin 57 ára stillti sér upp með tveimur svörtum köttum til að minnast afmælis myndarinnar, en Berry lék aðalhlutverkið, Kattarkonuna sjálfa.

„Og aftur… mjá! Það eru 20 ár í dag síðan ég fékk þann heiður að leika þessa goðsagnakenndupersónu. Hún mun alltaf standa nærri hjarta mínu og ég mun að eilífu vera Patience Phillips aka CATWOMAN! Að eilífu þakklát.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Halle Berry (@halleberry)

Berry segir einnig að aðdáandi hennar að nafni Jee hafi hjálpað henni að bjarga köttunum sem sitja fyrir með henni. Þeir hafi birst í garðinum hennarí leit að móður sinni og Jee hafi aðstoðað hana við að bjarga þeim.

Fylgjendur Berry áttu varla orð til að lýsa hrifningu sinni og sögðu hana líta stórkostlega út.

Catwoman var frumsýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum 23. júlí 2004, myndin floppaði algjörlega og þénaði aðeins 82,4 milljónir dala í miðasölu um allan heim en kostaði 100 milljón dali í framleiðslu. Sömuleiðis fékk hún ekki háar einkunnir á kvikmyndavefsíðum

„Ég elskaði ekki gagnrýnina. Þar sem ég er þeldökk kona er ég vön því að fá á mig gagnrýni,“ sagði hún við Entertainment Weekly í síðustu viku. „Ég er vön að ögra staðalímyndum. Það fór ekki með mig vegna þess að ég hef barist sem blökkukona allt mitt líf. Smá slæmt umtal um kvikmynd? Ég elskaði það ekki, en það braut mig ekki niður eða kom í veg fyrir að gera það sem ég elska að gera.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Það eru mistök að nota þvottaklemmur við útiþurrkun

Það eru mistök að nota þvottaklemmur við útiþurrkun
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rómantísk stund þegar Jakob bað Gerðar – Sjáðu myndbandið

Rómantísk stund þegar Jakob bað Gerðar – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 5 dögum

KALEO gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum

KALEO gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum