fbpx
Þriðjudagur 01.apríl 2025
Fréttir

Myndband sýnir hvernig árásin á Krít byrjaði – Emmanuel þurfti að fá súrefni í gegnum hálsinn

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 24. júlí 2024 12:00

Kennsl hafa verið borin á tvo mennina en enginn hefur verið handtekinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband úr öryggismyndavél er komið fram sem sýnir upphafið af árásinni á íslensku fjölskylduna á Krít fyrr í mánuðinum. Eins og sést á myndum er fjölskyldufaðirinn Emmanuel Kakoulakis mjög illa farinn.

Emmanuel nefbrotnaði og kjálkabrotnaði í árásinni. Auk þessi þurfti að gera aðgerð á honum til þess að koma súrefni ofan í lungun í gegnum hálsinn.

Emmanuel í mjög alvarlegu ástandi á spítalanum.

Myndirnar voru teknar af honum á Venizelio sjúkrahúsinu í Heraklion. En árásin átti sér stað á bar í borginni að morgni miðvikudagsins 17. júlí þegar Emmanuel og fjölskylda hans voru á fara þaðan.

Orðaskipti eftir sígarettubruna

Yana Sana, íslensk eiginkona Emmanuels, og sonur hennar Thomas voru í viðtali vð DV skömmu eftir árásina. En einnig var ráðist á aðra fjölskyldumeðlimi, þó ekki jafn alvarlega og á Emmanuel. Sagði Yana að Emmanuel hefði verið meira og minna sofandi dagana eftir árásina og gæti ekki talað mikið. Thomas sagði að árásarmennirnir hefðu verið með athugasemdir um móður sína, sem sé mjög falleg kona.

Sjá einnig:

Yana og fjölskylda hennar urðu fyrir hrottalegri árás á Krít – „Ástand hans er alvarlegt og við biðjum öll fyrir honum“

„Einn maðurinn stakk logandi sígarettu í hendi stjúpföður míns. Stjúpfaðir minn spurði hann hvers vegna hann hefði gert þetta en var ekki með neinn æsing. Þá sagði maðurinn: „Drullaðu þér burt. Veistu ekki hver ég er? Ég og fjölskylda mín erum stór hérna,“ sagði Thomas um hvernig árásin hefði byrjað.

Í myndbandinu úr öryggismyndavélakerfinu sést hvernig atvikið byrjaði. Orðaskipti áttu sér stað sem sífellt fleiri komu að og loks fóru handalögmálin að ráða. Alvarlegustu barsmíðarnar áttu sér hins vegar stað fyrir utan barinn. Þangað var fjölskyldan sótt á sjúkrabílum en árásarmennirnir forðuðu sér í burtu.

Lögreglan gagnrýnd

Málið hefur vakið mikla athygli, bæði í Grikklandi og á Íslandi. Hafa stjórnvöld í báðum löndum lýst áhyggjum sínum. Þá hefur kanadíski sendiherrann heimsótt Emmanuel á spítalann sem og ráðherra ferðamála í Grikklandi. En Grikkir hafa miklar áhyggjur af því að árásin muni bitna á ferðaþjónustunni í landinu.

Gagnrýnt hefur verið að enginn hafi verið handtekinn í málinu. Það þrátt fyrir að borið hafi verið kennsl á að minnsta kosti tvo af fjórum árásarmönnunum. En þeir sjást í myndbandinu úr öryggismyndavélakerfinu. Fjölskyldan gat einnig borið kennsl á þá af ljósmyndum, en þeir eru sagðir vera góðkunningjar lögreglunnar.

Þetta er ekki eina alvarlega ofbeldismálið sem komið hefur upp á Krít að undanförnu eins og segir í frétt Greek City Times um málið. Ráðist var á 16 ára dreng í bænum Anogia fyrir skemmstu og lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir að bregðast ekki við.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Snorri spyr hvort þetta sé í alvörunni umdeild skoðun fámenns hóps – „Hér er talað eins og við séum örlítill grenjandi minnihluti“

Snorri spyr hvort þetta sé í alvörunni umdeild skoðun fámenns hóps – „Hér er talað eins og við séum örlítill grenjandi minnihluti“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Bjarni Már: „Spurn­ing­in er ekki hvort Ísland þurfi að bregðast við, held­ur hvenær”

Bjarni Már: „Spurn­ing­in er ekki hvort Ísland þurfi að bregðast við, held­ur hvenær”
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Segir að Úkraína verði að velja á milli að verða bandarísk eða rússnesk nýlenda

Segir að Úkraína verði að velja á milli að verða bandarísk eða rússnesk nýlenda
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur

Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur
Fréttir
Í gær

Hátt í 30 manns bjargað af Eyjafjallajökli

Hátt í 30 manns bjargað af Eyjafjallajökli
Fréttir
Í gær

5 gista fangageymslur eftir nóttina

5 gista fangageymslur eftir nóttina