David De Gea var opinn fyrir því að snúa aftur til Manchester United í sumar ef Erik ten Hag hefði yfirgefið félagið. The Athletic segir frá.
Hinn 33 ára gamli De Gea er enn frjáls ferða sinna eftir að hafa yfirgefið United eftir þarsíðasta tímabil. Markvörðurinn fann sér ekki lið á síðustu leiktíð en skoðar nú stöðu sína.
De Gea á að hafa sagt fólki nálægt sér í sumar að hann væri til í að snúa aftur til United ef stjórinn Erik ten Hag og John Murtough, sem var yfirmaður knattspyrnmála, myndu fara frá félaginu. Sá síðarnefndi fór en Ten Hag er enn stjóri.
De Gea er í leit að nýjum vinnuveitanda, en á dögunum gaf hann í skyn að einhverra frétta væri að vænta þegar hann setti mynd af stundarglasi á X (áður Twitter).
The Athletic sagði frá því í gær að De Gea væri með möguleika á borðinu frá Sádi-Arabíu, Bandaríkjunum og Ítalíu.