Knattspyrnumaðurinn öflugi Mykhailo Mudryk fékk nokkuð mikið hatur á samskiptamiðlum eftir mynd sem hann birti af sjálfum sér.
Þetta hatur á að sjálfsögðu engan rétt á sér en Mudryk sýndi frá nýrri klippingu sem hann virðist ætla að skarta í vetur.
Mudryk var áður með ljósa lokka en hefur látið raka þá af og er stuttklipptur fyrir veturinn.
,,Þú ert eins og glæpamaður, kannski ertu glæpamaður?“ skrifar einn við færslu Mudryk og bætir annar við: ,,Ég myndi forðast þig.“
Mudryk er með þónokkur húðflúr á sínum líkama sem fólk virðist bendla við glæpamenn en Úkraínumaðurinn spilar með Chelsea á Englandi.
Myndina sem Mudryk birti má sjá hér.