Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og fyrirlesari er duglegur að veita ráð um allt sem við kemur fjármálum, bæði með greinaskrifum sínum og á miðlum sínum.
Á Instagram birti hann nýlega ráð um fjárhagslegt öryggi á ferðalögum og peninga á ferðalögum.
Til að tryggja fjárhagslegt öryggi á ferðalögum:
Fáðu að vita heildarverðið fyrirfram, til dæmis áður en stigið er upp í leigubíl.
Kynntu þér algengustu svik, svindl og glæpi á áfangastaðnum.
Fylgstu með færslum á kortinu og læstu því ef eitthvað virðist bogið á yfirlitinu.
Varaðu þig á ókeypis þráðlausu neti. Það getur opnað leið fyrir glæpamenn.
Láttu nágranna vita að þú sért á leið út og hugaðu að öryggi heimilisins svo þú getir notið frísins áhyggjulaus.
Þegar kemur að notkun peninga á ferðalögum segir Björn nauðsynlegt að hafa þetta í huga:
Þegar beðið er að velja um gjaldmiðil á posa skaltu ekki velja krónuna heldur gjaldmiðil þess lands.
Farðu helst í hraðbanka inn í eða utan á útibúi stóra banka. Frekar en að nota hraðbankavélar hér og þar.
Berðu saman kostnað og gengi sem þú færð á greiðslukorti. Sum kort henta betur á ferðalögum en önnur.
Það getur verið öruggara að greiða með símanum eða úri en að nota kortin sjálfur.
Með því að nota reiðufé frekar en kort og prútta gætir þú haldið aftur af neyslu og sparað.