fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Pressan

Telja sig hafa gert uppgötvun sem gæti leyst eina dularfyllstu ráðgátu flugsögunnar

Pressan
Mánudaginn 22. júlí 2024 20:00

Tony Romeo ásamt samstarfsmanni sínum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bræðurnir Tony og Lloyd Romeo telja sig hafa fundið púslið sem gæti loks leyst eina dularfyllstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað gerðist fyrir goðsögnina Amelíu Earhart? Bræðurnir, sem reka djúpköfunarfyrirtækið Deep Sea Vision, telja sig hafa fundið flak flugvélar Earhart, skammt frá Howlandeyju í Kyrrahafinu, sem er afskekkt eyðieyja sem tilheyrir Bandaríkjunum.

Flugvélarinnar hefur verið leitað í 87 ár eða allt frá því að Earhart hvarf, ásamt siglingafræðingnum Fred Noonan, þegar hún var að freista þess að verða fyrst kvenna til að fljúga hringinn í kringum hnöttinn.

Náðu aldrei að eyjunni afskekktu

Sást vélin síðast nálægt Howlandeyju þann 2. júlí 1937 en frumstæð flugbraut var á eyjunni sem hafði verið byggð upp með það að markmiði að flugvélar á leið milli Ástralíu og Bandaríkjanna gætu tekið þar eldsneyti. Var það einmitt ætlun Earhart og Noonan en þangað komust tvímenningarnir aldrei.

Goðsögnin í kringum hvarf Amelíu Earhart hefur lifað í 87 ár

Örlög Earhart hafa verið sveipuð ævintýraljóma í gegnum tíðina og margar kenningar verið á lofti. Því hefur verið haldið fram að Earhart og Noonan hafi verið tekin höndum af Japönum og látist í þeirra haldi. Farist í brotlendingu vélarinnar sem og lifaði slíkt slys af en dáið bjargarlaus á einhverjum af eyðieyjunum í kring.

Sú kenning hefur verið lífsseig í ljósi þess að á Gardner-eyju, sem er um 400 sjómílum frá Howlandeyju, fundust líkamsleifar árið 1940 sem gætu hafa verið af Earhart. Mannabeinin týndust hins vegar og aldrei tókst að rannsaka almennilega af hverjum þau voru.

Ætla að hafa hraðar hendur við að ná vélinni upp

Eins og gefur að skilja hafa Romeo-bræður ekki gefið upp staðinn þar sem þeir telja sig hafa fundið flugvél Earhart. Staðurinn sé í 100 sjómílna radíus í kringum Howlandeyju en fyrirtæki þeirra hafi farið í langan túr í september á síðasta ári og myndað sjávarbotninn allt í kringum eyjuna.

Bræðurnir segjast sannfærðir um að vél Earheart sé loks fundin

Langan tíma hafi tekið að vinna úr myndunum en loks hafi þeir fundið þúst á sjávarbotni sem lítur út eins og flugvél. Það sem meira er þá stemma hlutföll hinnar mögulega flugvélar nákvæmlega við flugvél Earhart sem var af gerðinni Lockheed Electra.

Bræðurnir segja spenntir fyrir því að halda í annan leiðangur þar sem frekari rannsóknir fari fram og síðan verði allt sett á fullt við að reyna að ná vélinni aftur upp á yfirborðið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 dögum

Eftirsóttur, eftirlýstur, alræmdur – Piparsveinninn loksins í fangelsi eftir að hafa sloppið fimm sinnum með skrekkinn

Eftirsóttur, eftirlýstur, alræmdur – Piparsveinninn loksins í fangelsi eftir að hafa sloppið fimm sinnum með skrekkinn
Pressan
Fyrir 6 dögum

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Neanderdalsmenn önnuðust 6 ára þroskaheft barn

Neanderdalsmenn önnuðust 6 ára þroskaheft barn
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum