Bandaríski líkamsræktarfrömuðurinn Richard Simmons lést 13. Júlí síðastliðinn, degi eftir 76 ára afmæli sitt.
Starfsfólk hans deildi nú um helgina síðustu myndinni sem tekin var af Simmons og færslu sem hann útbjó sjálfur fyrir andlát sitt. „Við héldum að þið mynduð vilja sjá hana.“
„Frá starfsfólki Richard: Halló öll. Richard lagði mikla vinnu í færslurnar sínar fyrir ykkur. Hann var með margar hugmyndir og vann þær fram í tímann… fór svo aftur í hverja og eina til að gera breytingar þar til færslurnar voru alveg eins og hann vildi áður en hann birti,“ segir í færslu starfsfólksins á laugardag.
„Eins og þið vitið, um helgar var hann vanur að deila bara mynd með fyrirsögn. Hann valdi alltaf myndirnar sínar og skrifaði myndatexta sína fyrir komandi helgi á föstudegi. Þannig að við erum með færsluna sem Richard ætlaði að deila með þér síðasta sunnudag. Við héldum að þú myndir vilja sjá hana.“
Hér er færslan sem Richard hafði skipulagt fyrir þig sunnudaginn 14. júlí 2024. „Leyfðu mér að fljúga þér til tunglsins svo við getum horft á stjörnurnar. Ást, Richard.’“
Á myndinni er Simmons sig í appelsínugulum geimfarabúningi frá NASA fyrir framan litríkan bakgrunn.
Here is the post Richard had planned for you for Sunday July 14, 2024. 3/3
“Let me fly you to the moon so we can gaze among the stars.
Love,
Richard” pic.twitter.com/aatT3LkrsT— Richard Simmons (@TheWeightSaint) July 20, 2024
TMZ greindi frá því að Simmons hefði dottið á baðherberginu föstudaginn 12. júlí og neitað að leita læknisaðstoðar. Heimilishjálp hans aðstoðaði hann í rúmið og fann hann látinn morguninn eftir. Lögregla telur ekkert saknæmt við andlátið, en rannsókn er enn í gangi.
Simmons var jarðaður síðastliðinn föstudag í Los Angeles að viðstöddum fjölskyldu og nánustu vinum.