Hjónin Derek Hough og Hayley Erbert Hough eru stödd á Íslandi.
,,Hvar er Hailey þessa dagana, Við sjáum hana aldrei?“ Tók mig smá tíma, en ég fann hana. Eigum við að gera stutt myndbönd á ferðinni? Eða eitt myndband í lokin á þessu ævintýri?“
Spyr Derek 3,4 milljón fylgjendur sína á Instagram og birtir myndband frá Reykjavík, þar sem sjá má hjónin taka sporið við Hallgrímskirkju.
View this post on Instagram
Hjónin kynntust við tökur á þáttunum Dancing With The Stars árið 2015 og giftu sig í ágúst í fyrra. Undir lok árs var Hailey flutt með hraði á sjúkrahús eftir að hafa misst allan mátt á sviði í Washington. Eftir fjölda rannsókna kom í ljós að hún var með heilablæðingu og gekkst hún undir bráðaaðgerð þar sem hluti af höfuðkúpubeini hennar var fjarlægður til að létta á þrýstingi á heila. Derek sagði aðgerðina hafa gengið vel en ljóst væri að það væri langur batavegur fram undan.
Derek er dansari, danshöfundur, leikari og söngvari. Árin 2007-2016 dansaði hann sem atvinnudansari í Dancing with the Stars og á met í vinningi þar ásamt stjörnumeðdönsurum sínum. Árið 2020 kom hann inn sem dómari í þáttunum. Hann hefur hlotið 14 tilnefningar til Emmy verðlauna og unnið sex sinnum. Derek hefur komið margoft fram á sviði, í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og tónlistarmyndböndum.
Líkt og eiginmaðurinn þá hefur Hayley dansað frá barnsaldri. Í menntaskóla komst hún í þriðja sæti í þáttunum So You Think You Can Dance. Hún hefur komið fram í fjölda þátta og kvikmynda og meðal annars dansað með stjörnum eins og Paula Abdul, Pitbull og Carrie Underwood. Hún dansaði með Derek og systur hans, Julianne, í tveimur danssýninum þeirra árin 2014 og 2015, auk þess að vera hluti af hópnum í Dancing with the Stars: Live! sýningunum.